top of page
Writer's pictureSúrefni

Efla og Súrefni hefja samstarf



Síðustu vikur höfum við átt í árangursríkum samræðum við Eflu verkfræði- og ráðgjafastofu og erum hæstánægð að geta tilkynnt öflugt samstarf á milli Súrefnis, Eflu og Ísorku.


Efla er framúrskarandi í sjálfbærni og útreikningum á kolefnisspori fyrir alla lögaðila, frá litlum fyrirtækjum til stærri stofnana og framkvæmir að auki ýtarlegar lífsferilsgreiningar þar sem á við. Efla getur að auki reiknað út umhverfisáhrif einstakrar vöruframleiðslu eða þjónustu.


Þessi vinna styður vel við kjarnastarfsemi Súrefnis, ábyrga kolefnisjöfnun. Súrefni býður nú hágæða vottaðar og virkar kolefniseiningar sem endurspegla gæði starfsemis Ísorku, uppsetningu og viðhald rafhleðslustöðva. Hægt er að nýta einingarnar til ábyrgrar kolefnisjöfnunar að útreikning loknum. Þetta hámarkar gæði þjónustunnar og uppfyllir jafnframt ýtrustu kröfur Umhverfisstofnunar, Staðlaráðs, ISO staðalsins og ICROA staðalsins um ábyrga kolefnisjöfnun.


Nánar um verkefnið hér

bottom of page