Mat á vörum og uppruna
Við förum yfir innflutningsskýrslur, tollskrárnúmer, upprunagögn og árlegt magn. Þið fáið yfirlit yfir vörur sem falla undir CBAM og hvaða gögn vantar fyrir næstu sendingu.
Frá 1. janúar 2027 nær CBAM til innflutnings á tilteknum vörum til Íslands. Súrefni aðstoðar innflytjendur, framleiðendur og innkaupateymi við að greina hvaða vörur falla undir kerfið, afla losunargagna og áætla kostnað áður en samið er um kaup.
Fá mat á innflutningiVið förum yfir innflutningsskýrslur, tollskrárnúmer, upprunagögn og árlegt magn. Þið fáið yfirlit yfir vörur sem falla undir CBAM og hvaða gögn vantar fyrir næstu sendingu.
Við útbúum gagnabeiðnir, rýnum útreikninga á innbyggðri losun og metum hvenær má nota sjálfgefin gildi. Þegar raunlosun er lögð til grundvallar undirbúum við gögnin fyrir óháðan, faggiltan sannprófanda. Við mat á losun frá frumframleiðslu áls er tekið tillit til koltvísýrings og perflúorkolefna (PFC).
Við áætlum vottorðaþörf og kostnað með hliðsjón af losun, viðeigandi endurgjaldslausri úthlutun og því kolefnisverði sem þegar hefur verið greitt og heimilt er að draga frá. Við aðstoðum við umsókn um viðurkenningu og undirbúning árlegrar CBAM-yfirlýsingar.
Tollskrárnúmer, uppruni og tollmeðferð vörunnar ráða því hvort hún fellur undir aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM). Fyrirtæki í ólíkum atvinnugreinum geta því borið sömu skyldur við innflutning.
Óunnið ál (CN 7601), álprófílar (CN 7604) og tilteknar stálvörur falla undir kerfið. Ál með íslenskan uppruna má almennt selja til ESB án CBAM-gjalds. Fyrirtæki sem kaupir ál eða stál erlendis þarf hins vegar að kanna uppruna og tollmeðferð hverrar vörutegundar. Fyrir álver tökum við saman upprunagögn fyrir kaupendur og metum áhrif þess á framleiðslukostnað að dregið verði úr ókeypis úthlutun losunarheimilda í viðskiptakerfi ESB.
Innflytjendur sements, klinkers, tiltekinna stálhluta og köfnunarefnisáburðar geta borið skyldur. Við berum tollskrárnúmer hverrar vöru saman við vörulistann í I. viðauka reglugerðarinnar.
Raforka og vetni falla undir sérstakar reglur. Við metum skyldur vegna viðkomandi innflutnings og hvaða gögn þarf að fá frá framleiðanda eða seljanda.
Frá 2027 leggst saman nettóþyngd gjaldskyldra ál-, járn- og stálvara, sements og áburðar sem sami innflytjandi flytur til Íslands, Noregs og ESB. Fari heildin yfir 50 tonn falla allar viðkomandi vörur ársins undir kerfið. Fyrir raforku og vetni gilda engin slík magnmörk.
Innflytjandi eða óbeinn tollfulltrúi hans sækir um stöðu viðurkennds CBAM-skýrslugjafa áður en innflutningur hefst. Sé umsókn lögð fram fyrir innflutning og eigi síðar en 31. mars 2027 má flytja inn meðan beðið er eftir afgreiðslu hennar.
Frá 2027 þarf við lok hvers ársfjórðungs að eiga vottorð fyrir að minnsta kosti 50% af áætlaðri innbyggðri losun innflutnings frá áramótum, með lögbundnum leiðréttingum. Fyrir vörur sem falla undir 50 tonna viðmiðið þarf fyrst að uppfylla þessa kröfu í lok ársfjórðungsins eftir að farið er yfir viðmiðið. Fyrir innflutning til Íslands árið 2027 skal skila fyrstu árlegu yfirlýsingunni og tilskildum vottorðum í síðasta lagi 30. september 2028. Fyrstu skil vegna innflutnings til ESB árið 2026 eru 30. september 2027.
Sendingarland og upprunaland geta verið ólík. Hafi vara frá þriðja landi þegar verið tollafgreidd til frjálsrar dreifingar á sameiginlega CBAM-svæðinu þarf að tilgreina fyrri afgreiðslu í næstu tollskýrslu og hafa gögn því til staðfestingar við höndina.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 283/2026 tók gildi 18. nóvember. Samkvæmt henni nær CBAM til innflutnings til Íslands og Noregs frá 1. janúar 2027. Íslenska innleiðingarfrumvarpið, 233. mál, er til meðferðar hjá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
ESB og Bretland hafa lokið samningaviðræðum um tengingu viðskiptakerfa sinna með losunarheimildir frá 2028. Möguleg CBAM-undanþága fyrir vörur með breskan uppruna er háð fullgildingu, gildistöku og breytingu á III. viðauka ESB-reglugerðarinnar. Við kostnaðarmat fyrir 2027 gilda núverandi reglur.
Stofnanir ESB fjalla um tillögu um að fella fleiri fullunnar vörur úr stáli og áli undir CBAM frá 1. janúar 2028. Endanlegur vörulisti og gildistaka ráðast af niðurstöðu löggjafarferlisins.
Í júlí 2026 leiðrétti framkvæmdastjórn ESB töflur yfir sjálfgefin losunargildi. Byggist tilboð birgis á slíkum gildum þarf að velja viðeigandi gildi úr leiðréttu töflunum eftir tollskrárnúmeri, upprunalandi, framleiðsluaðferð og innflutningsári.
Sendið okkur dæmi um vöruna, tollskrárnúmer ef það liggur fyrir, upprunaland og áætlað ársmagn. Við metum hvaða reglur eiga við og hvaða upplýsingar þarf að sækja til birgja.